Prentsmiðja fyrir krakka og ungmenni

3. desember 2022, Prent Verk Seyðisfjörður, Öldugata 14

Skaftfell býður krökkum og ungmennum upp á prentsmiðju í vinnustofu Prent Verk Seyðisfjörður. Leiðbeinandi er Linus Lohmann.

Laugardaginn 3. des, kl. 10 – 16
Prentsmiðja fyrir 8 ára og eldri.
Takmarkað pláss – skráning á [email protected]

Mismunandi prenttækni verður kynnt svo sem linocut og monoprint og búin verður til innpökkunar pappír úr kartöflu stimplum. Þátttakendur eru beðnir að koma með nesti með sér.

Sunnudaginn 4. des, kl. 12 – 16
Sýning á afrakstri smiðjunnar á hinum árlega jólamarkað í galleríi Herðubreiðar, þar sem þátttakendur geta sótt verkin sín að sýningu lokinni.

Verkefnið er styrkt af Múlaþingi og Samfélagssjóði Landsvirkjunar.