Home » 2023

Ra Tack: Small Works

Ra Tack (f. 1988) er belgískur málari og hljóðlistamaður sem býr og vinnur á Seyðisfirði. Málverk þeirra vega salt á milli abstraksjón og túlkunar og eru oft olíuverk á stóran striga. Í þessari innsetningu eru nýleg, smærri verk með olíukrít á pappír sem gefa meiri nánd til kynna. Verk Tacks samanstanda af blómlegum og tjáningarríkum litum og áferð, og fást við umbreytingu, tvískiptingu, ást og þrá. 

Verk Tacks hafa verið sýnd víða, meðal annars í einka- og samsýningum í London, Ghent, Berlín, New York, Kaupmannahöfn og Marrakesh. Þau eru meðal fremstu málara á Austurlandi og verk þeirra verða sýnd í Ásmundarsal í júlí og ágúst 2023. 

Á Skaftfell Bistró eru sýnd verk eftir listafólk frá Seyðisfirði og Austurlandi. Hér eru verk Tacks sýnd við hlið vatnslitamynda eftir þýska málarann Bernd Koberling, sem dvelur í Loðmundarfirði á sumrin, og upprunalegra prentverka eftir svissnesk-þýska listamanninn Dieter Roth (1930-1997) sem bjó og starfaði á Seyðisfirði á síðustu æviárum sínum.