Sala á listaverkum til styrktar Úkraínu safnaði 500.000 kr

Pop-up listaverkasalan til styrktar Úkraínu, sem haldin var í sýningarsal Skaftfells síðastliðinn sunnudag, safnaði alls 500.000 kr.!
Allur ágóði rennur óskiptur í neyðarsöfnun Rauði krossinn til styrktar íbúa Úkraínu sem eiga nú um sárt að binda.
Yfir 30 Listamenn á svæðinu gáfu verk sín auk þess sem tónlistarmennirnir Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer buðu upp á lifandi tónlistarflutning. Við viljum þakka öllum listamönnunum kærlega fyrir þessa veglegu og óeigingjörnu gjöf og sömuleiðis öllum þeim sem veittu söfnuninni aðstoð og síðast en ekki síst kaupendur verkanna. Við erum hrærðar yfir frábærum undirtektum nærsamfélagsins!