Stafrænt handverk

Stafrænt handverk er verkefni sem hannað var fyrir 5.-7. bekk og lagði áherslu á sköpun, endurvakningu gamals handverks, vísindalega nálgun og sjálfbærni.  Nemendur lærðu að búa til eigin litarefni og málningu úr hráefnum sem finna má í nærumhverfi. Að því loknu var notast við snjalltækni til að yfirfæra litinn á stafrænt form. Samhliða vinnuferlinu settu nemendur sig í spor rannsakenda og skrásettu hvert stig ferilsins. Heimildunum var svo miðlað í gegnum samfélagsmiðla og þannig gátu nemendur í mismunandi bæjarfélögum verið í gagnvirkum samskiptum hvert við annan.

Stafrænt handverk er öllum aðgengilegt á veraldarvefnum og er þátttaka gjaldfrjáls. Verkefnið er unnið í samstarfi við Seyðisfjarðarskóla og RoShambo og styrkt af Sprotasjóði og Menningarráði Austurlands.

Heimasíða verkefnisins: stafraenthandverk.tumblr.com