Velominn Michael Soltau

Við bjóðum Michael Soltau hjartanlega velkominn í gestavinnustofu Skaftfells.
Fjölmiðlaprófessorinn Michael Soltau, fæddur 1953 í Oldenburg (Þýskaland) býr og starfar í Leipzig og Varel. Í gegnum feril hans sem listamaður hefur hann kannað líkingar á milli náttúru og miðla. Hann setur þannig kastljós á ferli framsetningar í ljósmynda- og margmiðlunarsamhengi.
Ímynd og framsetning, sem og skynjun okkar á heiminum sem mótuð er af myndmiðlum, eru sett í sjónræna, staðbundna sviðsetningu. Myndum, hljóðum og innsetningum er þjappað saman í staðbundna heildaryfirlýsingu sem er oft aðeins upplifuð í viðkomandi tímabundnu og staðbundnu samhengi. Ljósmyndun og myndbandslúppur taka þátt í samræðum í rýminu – listaverk og framsetning renna saman í sjálfstæða listræna yfirlýsingu.
michael-soltau.de