Home » Vinnustofan Seyðisfjörður 2001-2018

Vinnustofan Seyðisfjörður 2001-2018

Nemendur, 2014
Nemendur, 2014

Efnisorð: Vinnustofan Seyðisfjörður

Á tímabilinu 2001-2018 var Vinnustofan Seyðisfjörður haldin átján sinnum á vegum Dieter Roth Akademíunnar fyrir útskriftarnema úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands. Alls tóku 193 nemendur þátt og hafa margir þeirra í kjölfarið snúið aftur og unnið að margvíslegum verkefnum í samvinnu með Skaftfelli s.s. tekið þátt í sýningum og öðrum listviðburðum eða komið að námskeiðahaldi tengdum sjónlistum.

Leiðbeinendur Vinnustofunnar Seyðisfjörður voru Björn Roth og Kristján Steingrímur Jónsson og á námskeiðinu var lögð áhersla á að nemendur kynntust aðferðafræði svissneska listamannsins Dieter Roth og gætu nýtt sé þær sérstæðu aðstæður sem Seyðisfjörður býður upp á. Skaftfell var aðalbækistöð nemenda á meðan á námskeiðinu stóð þar sem unnið var að þróunarvinnu og listsköpun. Hverju námskeiði lauk með sýningu í sýningarsal Skaftfells.

Samstarfsaðilar námskeiðsins voru Dieter Roth AkademíanListaháskóli Íslands, Tækniminjasafn Austurlands, Stálstjörnur og ýmsir aðrir innanbæjar aðilar.

Nemendur, 2013
Nemendur, 2013

 

Fyrri námskeið og sýningar:

2018, Allar leiðir slæmar

2017, Koma

2016, mars, NO SOLO

2014, nóvember, Soð

2014, mars, Veldi

2013, Trarappa

2012, Skáskegg á VHS+CD

2011, Annan hvern dag, á öðrum stað

2010, Hand Traffic In The Box

2009, Kippuhringur

2008, Harware/Sofware

2007, El Grillo

2006, Sleikjótindar

2005, Austrumu kontakts

2004, Rjómskip

2003, Akustinen Estetiikka

2002, Skaftfell, On the Rót – 80 dýr

2001, Skaftfell á Færi

Nemendur, 2011

Nemendur, 2011

Nemendur, 2007
Nemendur, 2007