
Cecilia Fiona (f. 1997), sem býr og starfar í Kaupmannahöfn í Danmörku, vinnur með skúlptúr, málverk og gjörninga og þróar samþætta listsköpun þar sem hver miðill framlengir og upplýsir hinn.
Í verkum sínum skapar hún ímyndaða heima þar sem mörkin milli manns, náttúru og alheims leysast upp í fljótandi ástand umbreytingar og tengsla.
Cecilia tekur þátt í samsýningunni Dreymendur og Draumgjafar sem opnar í sýningarsal Skaftfells 3. október.
Cecilia Fiona hlaut gestavinnustofu NAARCA 2026. Gestavinnustofur NAARCA 2026 byggja á áframhaldandi starfi NAARCA frá árinu 2021, þar sem tekist er á við loftslagsvána, tap á líffræðilegum fjölbreytileika og loftslagsréttlæti út frá fjórum stoðum sjálfbærni: vistfræðilegri, félagslegri, sálfræðilegri og menningarlegri. Þessar gestavinnustofur, sem eru mögulegar með stuðningi frá Norræna menningarsjóðnum, styðja við menningarskipti, djúpar rannsóknir og ígrundun, samfélagsþátttöku og sköpun nýrra verka og hugmynda um aðgerðir í loftslagsmálum.