
Dagný Rósa Vignisdóttir (f. 1999) er þverfaglegur sjónlistarmaður og hönnuður. Hún lauk BA-gráðu í grafískri hönnun sumarið 2025 frá Konunglegu Listaakademíunni í Haag í Hollandi. Verk Dagnýjar sækja innblástur í töfraheim náttúrunnar og hefur hún að undanförnu rannsakað hliðstæður og endurtekningar í líffræðilegum formheimi hennar. Með því að kanna formfræðileg líkindi og tengsl lífvera og lífvænlegra kerfa náttúrunnar veltir hún fyrir sér hvernig skilningur á stöðu manneskjunnar í stærra vistkerfi getur eflt vistfræðilega samkennd. Frá því hún sneri aftur til Íslands hefur Dagný stundað vettvangsrannsóknir á ólíkum svæðum íslenskrar náttúru, nánar tiltekið á Flateyri og í Jökulsárgljúfrum, þar sem bein upplifun og áhrif úr umhverfinu móta verk hennar með vatns- og olíulitum. Á Seyðisfirði mun hún halda áfram að þróa þessar sjónrænu rannsóknir með rýni og túlkun á smá- og stórsæjum vistkerfum fjarðarins.