
Vertu með okkur í samtali við sýningarstjórann Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur um sýninguna Weaving Cosmologies: dreymendur og draumgjafar á laugardaginn kl. 15:00 í sýningarsal Skaftfells. Léttar veitingar í boði.
Weaving Cosmologies – dreymendur og draumgjafar með listamönnunum Ceciliu Fionu (DK), Kirstínu Morthens (IS), Hayden Dunham (USA), Morehshin Allahyari (IR/USA) & Gerði Helgadóttur (IS, 1928 – 1975) í sýningarstjórn Þórhildar Tinnu Sigurðardóttur fjallar um leitina að merkingu á tímum þar sem hún virðist oft sundurlaus eða utan seilingar. Sýningin leiðir saman verk þvert á kynslóðir og skapar sameiginlegt rými þar sem söguleg verk og nýjar tilraunir mætast. Glæsileg systursýning með sömu listamönnum stendur yfir í Þulu á Granda í Reykjavík til 7. nóvember.