apríl 25, 2026

Garðar Eymundsson – 100 ára afmæli

Væntanlegt
Skaftfellsgalleríið

Skaftfell Listamiðstöð býður ykkur hjartanlega velkomin á sérstaka sýningu í tilefni af 100 ára afmæli stofnandans og velunnarans Garðars Eymundssonar. Sýningin inniheldur verk sem spanna hans listræna feril, þar á meðal upprunalegar teikningar úr bókinni Fjallahringur Seyðisfjarðar, sem fyrst var gefin út árið 2009 í samstarfi við Björn Roth.

Við bjóðum ykkur að taka þátt í fullri dagskrá með okkur laugardaginn 25.apríl  í Skaftfelli, Austurvegi 42. 

Garðar Eymundsson er fæddur í Baldurshaga á Seyðisfirði nálægt sumarsólstöðum 1926. Hann ólst upp á traustu alþýðuheimili ásamt fjórum systkinum sínum. Faðir hans, Eymundur Ingvarsson frá Grímsey, tengdist verkalýðsbaráttu alla sína tíð og var lengi sjómaður á opnum árabátum. Móðir hans, Sigurborg Gunnarsdóttir af Héraði, var mikil hagleikskona sem allt lék í höndunum á. Garðar hóf skólagöngu 9 ára gamall eins og þá tíðkaðist. Hann fékk strax góða tilsögn í dráttlist og var farinn að teikna og mála mjög frambærilegar myndir tíu ára. Náttúru landsins og svipbrigðum kynntist hann á eigin skinni. Tólf ára var hann farinn að stunda fuglaveiðar með byssu og færa björg í bú og þrettán ára fór hann fyrst að heiman til sumarvinnu á Þórarinsstöðum við Seyðisfjörð. Öll ígripavinna var þegin, við kolaskip, uppskipun og útskipun, og 16 ára fór hann með seyðfirska fiskibátnum Valþóri á vertíð til Hornafjarðar sem beitningamaður. Um tíma naut hann tilsagnar skipasmiðsins Niels Hólms Petersens í trésmíði við Skipasmíðastöð Austurlands á Seyðisfirði. Tvítugur settist hann upp í rútu og var ferðinni heitið til Reykjavíkur. Fyrsta verk hans þar var að ná sér í góða liti og striga og fara að mála. Garðar velti fyrir sér myndlist sem starfi, en leist ekki betur en svo á lífsstíl meistaranna að hann ákvað að gerast trésmiður fyrst. Meðan á iðnnáminu stóð málaði hann í hjáverkum og seldust allar myndir hans jafnóðum. Hann og unnusta hans, Karólína Þorsteinsdóttir, giftust og hófu búskap í Reykjavík 1949. Þau fluttust síðan heim til Seyðisfjarðar 1951 og hafa búið þar að mestu síðan. Eiga þau saman fjögur börn, en Garðar átti einn son fyrir. Lengst af var Garðar umsvifamikill húsasmíðameistari og hefur komið að byggingu fleiri húsa en hægt er að nefna hér. Hann sá einnig um tréverk og innréttingar í svo að segja öll skipin 34 sem smíðuð voru hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar og Vélsmiðjunni Stál á árunum 1968 til 1991. Garðar hefur alla sína tíð stundað myndlist meðfram öðrum störfum, þroskað sína augljósu hæfileika og aldrei leyft þeim að leggjast í dróma. 78 ára féll hann endanlega í faðm listagyðjunnar, hætti trésmíðum og hefur síðan rekið eigin vinnustofu og gallerí. Fjölmargir hafa notið tilsagnar hans, bæði við húsagerðarlist og myndlist m.a. margir nemendur Listaháskóla Íslands. Sjálfur er hann þó stoltastur af listamiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði. Hann og Karólína kona hans gáfu húsið til menningarlífs á Seyðisfirði árið 1996 og hafa síðan bæði ýtt og togað.
– Pétur Kristjánsson


Aðrar sýningar

Vesturveggur (Bistró)
apríl 10, 2026

Garðar Bachmann Þórðarson: Skaflar