
Sýningarstjórar: Mariana Murcia & Lotte Rose Kjær Skau
Listamenn: Örn Alexander Ámundason, Una Margrét Árnadóttir, Á. Birna Björnsdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Vilhjálmur, Yngvi Hjálmarsson, Þórir Freyr Höskuldsson, Nina Magnúsdóttir, Una Björg Magnúsdóttir, Tumi Magnússon, Toti Ripper, Steina, Ísar Svan
It’s no longer possible to map any distance, er smásaga eftir Shahan Neman sem lýsir gönguferð sem blindar augað hjá þeim sem horfa fram á veginn. Með þessari einföldu myndlíkingu segir hún sögu þeirra sem reyna að yfirstíga fjarlægð. Upplifun af fjarlægð getur myndað spennu milli landslags og tilfinningalegs ástands, sem gerir mælingar þokukenndar. Leiðin verður miðillinn sem skráir hreyfingar líkama, á brautum, og hæðist að upphafi og endi.
Sýningin er samsýning tólf íslenskra listamanna. Þau ganga með bil á milli sín, en bilið er fyllt með þykkri nærveru, svo þykkri að hægt er að skera hana í sundur. Þótt það sé gegnsætt er erfitt að sjá hvað þar er. Það er mismunurinn sem sameinar þau á sterku undirlagi, dökk og glitrandi, stundum ruglingsleg, stundum vanmeta þau eins konar eftirvæntingu sem afhjúpast aldrei.
Lotte og Mariana hafa kynnst listamönnunum og vinnu þeirra í gegnum samstarf við LungA skólann og Skaftfell í gegnum árin. Þær hugsa helst um þessa sýningu sem ástand, að miðla og styðjast við anda þess, sem landslag tenginga á meðal hugsana, orða og ósýnilegra upplifana.