Johan F Karlsson – Pathway Through A Sunstone / Leið í gegnum sólarstein

11. febrúar – 12. mars 2022, í sýningarsal Skaftfells

Opnunin fer fram föstudaginn, 11. febrúar kl. 18:00-20:00 og er hluti af listahátíðinni List í ljósi. Sýningin verður opin til kl. 22:00 á 11./12. febrúar.

Leiðsögn með listamanninum fér fram á laugardaginn, 12. febrúar, kl. 15:00 (á ensku).

Opnunartími: Mán/fim/fös 12:00-14:00 og 17:00-20:00; þri/mið 12:00-20:00; lau/sun 17:00-20:00

Aðgangur er ókeypis og gengið í gegnum bistróið á fyrstu hæð.

 

Sýningin Leið í gegnum sólarstein byggist á listrænum rannsóknum á eiginleikum, sögu og notkun íslensks silfurbergs, sem er kristall og vel þekktur fyrir framlag sitt innan ljósfræðinnar og í tengslum við tilgátur um notkun hans sem siglingartæki. Með verkunum er sett fram tilraunakennd nálgun við viðfangsefnið; þau eru innblásin af ljósinu sem er einkennandi fyrir kristallinn og tvíbrots-eiginleika hans sem skapar tvöfalda mynd, skuggamynd. Skuggamyndin gerir manni kleift að að ímynda sér aðra vídd auk þess að tengja hana hugmyndinni um „tvíhyggju“ og gefur þannig í skyn tvenns konar nærveru eða tvo staði á sama tíma. Að vissu leyti getur upplifunin um tvöfalda mynd virkjað líkamsvitund og fært manni undirvitund sem tengist veruleika sem er handan tíma og rúms og leiðir mann inn í aðra heima. Sýningin getur þannig í heild sinni verið hugsuð sem ferðalag um tvær samliggjandi leiðir þar sem við finnum sameiginleg sambönd innan hins efnislega og óefnislega, línur og yfirborð, ljós og myrkur. 

Johan F Karlsson (SE) dvelur í gestavinnustofu Skaftfells í janúar og febrúar 2022 og fékk til þess styrk frá Norrænu menningargáttinni. Við dvöl sína hefur hann gert tilraunir, út frá listrænu sjónarmiði, með náttúrlegu skautunar- og tvíbrotseiginleika íslenska silfurbergsins. Með sýningunni og áframhaldandi rannsóknum er markmiðið að draga fram að mörgu leyti glataða þekkingu um það hvernig mennirnir hafa sigrast á umhverfi sínu, með því að nota forna siglingatækni sem hverfist um rýmisskynjun og afstöðu gagnvart skilyrðum ljóss.

Í myndlist sinni fæst Johan við ljósmyndun, skúlptúr- og vídeó innsetningar, rýmisinngrip og gjörninga. Hann vinnur oft  með rýmistengd verk sem lúta að tíma og rúmi, t.d. skilyrð ljóss og áhrif þess á skynjun mannsins á tíma og rúm og getu líkamans til að öðlast skilning gegnum skynjun á umhverfiþáttum, eins og ljósi, hita og hljóði. Í list sinn leggur Johan m.a. áherslu á hugboð um nærveru og skynjun rýmis í tengslum við hvernig við staðsetjum okkur. Þetta felur í sér rannsókn á mismunandi leiðsögutækni, átök mannsins við að öðlast betri þekkingu, sérstaklega við kortagerð og könnun, og hið andstæða: að treysta á hið óþekkta og möguleika þess. Listrænt séð, er markmið Johans að rannsaka aðferðir til að einfalda, sérstaklega í tengslum við smækkun efnis, hverfult eða „óefnisleg“ fyrirbæri eins og ljós/skugga, og jafnvel það sem gæti kallast ekkert. Þetta felur oft í sér að skapa landslag í sínum víðasta skilningi.

Johan F Karlsson (f. 1984) býr og starfar í Malmö, Svíþjóð. Hann hlaut BA gráðu í menningu og listum frá Novia University of Applied Sciences í Pietarsaari, Finnlandi, og MA gráðu í ljósmyndun frá Aalto University í Helsinki, Finnlandi. Johan hefur sýnt víða og tekið bæði þátt í samsýningum og einkasýningum í Svíþjóð, Finnlandi og Sviss, t.d. Gallery CC í Malmö, Gallery Huuto í Helsinki, the Photographic Center Peri í Turku, the Northern Photographic Center í Oulu og Erfrischungsraum í Lucerne.

Texti: Johan F Karlsson

Sýningarstjóri: Julia Martin