Auglýst eftir forstöðumanni

Skaftfell, myndlistarmiðstöð Austurlands, auglýsir eftir einbeittum, sjálfstæðum og drífandi forstöðumanni.

Starfsemi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og framþróun myndlistar á Austurlandi og er þeim markmiðum framfylgt með faglegri sýningardagskrá, rekstri gestavinnustofa og fræðslu fyrir börn og fullorðna í landsfjórðungnum. Við miðstöðina starfa þrír starfsmenn allt árið, auk sumarstarfsmanns.

Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri miðstöðvarinnar.

Helstu verkefni eru;

  • Umsýsla með fjármálum, samningagerð og almenn stjórnunarstörf.
  • Listræn stefnumótun, áætlanagerð og gerð styrkumsókna.
  • Skipulagning og umsjón með sýningadagskrá og viðburðum, fræðsluverkefnum og starfsemi gestavinnustofa.
  • Þátttaka í alþjóðlegum samstarfsverkefnum.
  • Samstarf við aðrar menningarmiðstöðvar, skólastofnanir og aðra sem vinna að málefnum lista og menningar á landsvísu
  • Umsjón með kynningarmálum fyrir miðstöðina og verkefni á hennar vegum.
  • Rekstur og umsýsla með fasteign miðstöðvarinnar að Austurvegi 42.

Hæfniskröfur: krefst góðrar fagþekkingar á innlendum sem erlendum myndlistarheimi, reynsla á sviði menningarstjórnunar, þekking og reynsla af menningarmálum almennt mikilvæg, færni í mannlegum samskiptum auk góðra forystu- og skipulagshæfileika.

Starfið getur hentað jafnt konum sem körlum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum BHM.

Æskilegt er að forstöðumaður geti hafið störf 1. okt 2018.

Allar frekari upplýsingar veitir Tinna Guðmundsdóttir, núverandi forstöðumaður, í síma 472 1632 eða á netfanginu [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2018.

Umsóknir berist á netfangið [email protected]