
How to listen to a mountain
Málþing í Skaftfelli – myndlistarmiðstöð Austurlands
7. nóvember · 10:30–17:00
Kvöldverður kl. 19:00 · Skaftfell Bistro
Hvernig á að hlusta á fjall er náin, eins dags samkoma sem snýst um Strandatind og er hluti af starfstengdu doktorsverkefni listamannsins Julie Lænkholm.
Með fjallið sem upphafspunkt leiðir málþingið saman ólík form þekkingar, reynslu og listrænnar iðkunar til að kanna tengsl okkar við náttúruna.
Í gegnum jarðfræði, loftslagsvísindi, staðbundið minni, líkamlega þekkingu, listasögu, göngu, tónlist, kvikmyndagerð og sameiginlega frásagnarlist munum við hlusta á fjallið, fjörðinn, ána, veðrið, jarðveginn og fólkið sem býr við hlið þeirra.
Í stað þess að nálgast fjallið sem viðfangsefni til rannsóknar spyr samkoman hvað það gæti þýtt að hlusta á landslag — og að viðurkenna þá þekkingu sem í því býr.
Dagskrá
10:30 · Koma og móttaka
Te úr jurtum af Strandatindi og bakkelsi.
Sýning hinsegin listafólksins Ra Tack og Bellu Podpadec úr heimabyggð verður opin allan daginn og er hluti af sameiginlegu rými málþingsins.
10:30–12:15
Inngangur: Julie Lænkholm
Starfstengt doktorsverkefni
PASS / Niels Bohr-stofnunin
Umræður með heimafólki og gestum um efni á borð við: Að hlusta í gegnum jarðfræði og vöktun; persónulegar sögur úr firðinum; loftslagsbreytingar, jákvæða vendipunkta og möguleikann á umbreytandi aðgerðum í umhverfismálum.
12:15–13:15 Hádegisverður á Skaftfell Bistro.
13:15–15:15
Umræður halda áfram um efni á borð við: Landslag, listasögu og and-minnisvarðaiðkun; samtal um landslag, listræna framsetningu og hvernig list getur mótað, dregið í efa og umbreytt tengslum okkar við stað; könnun á veðri sem lifaðri reynslu, arfleiddri þekkingu og daglegri athugun.
15:15 · Gengið með fjallinu
Sameiginleg ganga í hlíðum Strandatinds.
Ganga sem leið til að hlusta, skoða og mæta fjallinu í gegnum hreyfingu, athygli og líkamlega reynslu.
17:00 · Lok
19:00 · Kvöldverður á Skaftfell Bistro
Óformleg samvera til að halda samræðum áfram og deila hugleiðingum dagsins.
Hvernig á að hlusta á fjall er boð um að íhuga hvernig þekking mótast í gegnum athygli, nálægð, minni og umhyggju.
Með því að leiða saman vísindaleg, listræn, líkamleg og staðbundin sjónarhorn spyr málþingið hvernig við getum komist út fyrir þann skilning að landslag sé eitthvað aðskilið okkur sjálfum — og farið að líta á það sem eitthvað sem við erum hluti af.
Dagskráin og hádegisverðurinn eru ókeypis en við biðjum ykkur að skrá þátttöku með því að senda okkur póst á skaftfell@skaftfell.is með nafni, símanúmeri og upplýsingum um sérþarfir í mataræði.