október 27, 2026
How to Listen to a Mountain – a Symposium
Skoða nánar

Hvaðan kemur confetti? var Listfræðsluverkefni Skaftfells í ár og var hannað og kennt af Hildigunni Birgisdóttur. Á BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi ferðaðist hún frá Öxarfirði til Djúpavogs og heimsótti alla grunnskóla þar á milli, 13 samtals. Alls tóku um 200 börn þátt í smiðjunni og skreyttu umhverfi sitt og skoðuðu mismunandi veislumenningu frá ýmsum heimshornum; flugeldar frá kína, pinjötur frá Suður Ameríku og confetti…hvaðan kemur confetti? Verkefnið er styrkt af List fyrir alla, Sóknaráætlun Austurlands og BRAS Menningarhátíð Barna og Ungmenna á Austurlandi.