Cathrine Alice Liberg

2026
Október

Cathrine Alice Liberg (f. 1988) er myndlistarmaður og grafíklistamaður sem býr og starfar í Osló. Hún vinnur með hefðbundnar grafíkaðferðir á borð við mezzótintu, ætingu og steinþrykk. Hún er af norskum og kínversk-singapúrskum uppruna og hefur þessi blandaði bakgrunnur mótað listsköpun hennar. Með grafíkinni kannar hún dreifbýli þjóða (díaspóru), fólksflutninga, alþjóðaviðskipti og menningarlega blöndun – viðfangsefni sem sprottin eru að miklu leyti af getu prentmiðilsins til að dreifa texta, myndum og kortum af framandi stöðum. Persónuleg fjölskyldusaga, og hvernig hún endurspeglar brot af stærri alþjóðlegum frásögnum, er kjarni hvers verkefnis. Hún hefur sérstakan áhuga á þeirri bjögun minninga og menningarlegs skilnings sem verður við fólksflutninga og með tímanum – og spyr hvort við getum nokkurn tíma orðið áreiðanlegir sögumenn sagna forfeðra okkar.

Liberg lauk MFA-gráðu í miðils- og efnisbundinni list frá Listaháskólanum í Ósló árið 2019. Dvöl hennar í Skaftfelli er styrkt af Norska listaráðinu (Arts Council Norway).

Learn more about their work

Aðrir listamenn