
Leikstjóri: Peter Liechti
Ár: 1996
Land: Sviss
Lengt: 85 mín
Í tilefni af sýningarlokum á Roman Signer: Íslensk verk sýnir Skaftfell kvikmyndina Signers Koffer [Taska Signers] frá árinu 1996. Leikstjórinn Peter Liechti fylgir Roman Signer eftir á persónulegum hugarreiki um landslag Sviss, Póllands, Ítalíu og að sjálfsögðu Íslands. Þessir staðir eru ekki aðeins bakgrunnur fyrir ferðalög Signers heldur einnig vettvangur fyrir sköpun á sérstæðum, athafnatengdum listaverkum hans. Kvikmyndin dregur fram kímnina og fáránleikann í verkum Signers og veitir innsýn í samband hans við þessa staði. Ísland er sérstaklega sýnt sem staður þar sem íbúarnir hafa þróað með sér sérstök samskipti við landslagið, svo sem með byggingu jarðvarmavirkjana, búsetu í síbreytilegu eldfjallalandslagi og félagslegu mikilvægi útilauganna.