Árni Jónsson & Sigurrós G. Björnsdóttir – Summerhouse

Yfirstandandi sýningar
Vesturveggur (Bistró)

Summer House er samvinnusýning Árna Jónssonar og Sigurrósar G. Björnsdóttur.
Þar birtast tilvísanir í hluti og athafnir sem margir þekkja úr daglegu lífi, tímabundið athvarf þar sem reglur hins daglega lífs mýkjast og hið kunnuglega fær nýja merkingu.

Mín besta suða var 7 mínútur og 20 sekúndur. Næsta verður heil mannsævi.
Margundin, mikilvæg og góð tuska.
Góður þurrkur, brakandi ferskt.

Óteljandi týnd bókamerki og tannstönglar.
Svo er best að lesa bókina alltaf á sama stað, í nýju sokkapari..

Sigurrós G. Björnsdóttir (f. 1991, Reykjavík) er íslenskur listamaður búsett í Antwerpen, Belgíu. Hún lauk meistaragráðu í myndlist frá Konunglegu listaakademíunni í Antwerpen árið 2021 og BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Verk hennar spanna bæði tví- og þrívíða miðla, þar á meðal skúlptúra, pappírsverk og innsetningar. Verk Sigurrósar einkennast af forvitni, innri spennu og innsæi. Hún sækir efnivið í brotakenndar frásagnir, sérkennileg atvik eða lúmskar vísbendingar úr nánasta umhverfi sínu og varpar fram spurningum um uppruna hluta, merkingu og tilviljun.

Árni Jónsson (f. 1989) vinnur myndlist sína aðallega í trésmíði, stafræna miðla og innsetningar. List hans einkennist af einfaldri, gamansamri og hnitmiðaðri nálgun, um leið og hann tjáir persónulegar hugsanir og fangar liðna og/eða ímyndaða atburði. Timbur er oft undirstaða að hugmyndum hans, sem oft þróast í innsetningar í bland við aðra miðla. Árni er með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands (2016) og meistaragráðu frá Royal Academy of Fine Arts í Antwerpen (2023).

Aðrar sýningar

Skaftfellsgalleríið
maí 8, 2026

It’s no longer possible to map any distance