apríl 10, 2026

Garðar Bachmann Þórðarson: Skaflar

Yfirstandandi sýningar
Vesturveggur (Bistró)

Þessi myndaröð er um snjóruðninga sem myndast við vetrarþjónustu á vegum Seyðisfjarðarbæjar. Þeir verða til þegar þungavinnuvélar ryðja snjó af leiðum, en taka á sig form sem minna á skúlptúra—eins konar minnisvarða mótaða af endurtekningu, afli og nauðsyn.

Þeir sem stýra vélunum eru heimamenn, en verk þeirra (Skaflarnir) mynda þessi form sem eru tímabundin og síbreytileg sem mótast svo áfram af veðri og mannlegum afskiptum.

Með því að mynda snjóruðningana set ég þá í ramma og beini athygli að þeim og dreg fram spurningar um höfundarvald og athygli. Hver skapar verkið—gröfumennirnir, umhverfið eða sjálf myndatakan?

Garðar Bachmann Þórðarson er ljósmyndari og matreiðslumaður sem býr og starfar á Seyðisfirði. Hann gaf út bókina Brak & Brestir, Fólk og matur um borð á togaranum Gullver NS12.

Aðrar sýningar