
Kata Jóhanness er myndlistarmaður úr Reykjavík. Hún skoðar tengslamyndun manneskjunnar við umhverfi sitt og fyrirbærin sem því tilheyra en einnig hvernig manneskjan túlkar veruleikann með söfnun og skrásetningu. Í verkum hennar fléttast saman margir þræðir sem hafa það sameiginlega markmið að ýta undir skynjun, virðingu og samleik. Verkin skerpa tilfinningu fyrir tímanum og hvernig allt hangir saman í fortíð, nútíð og framtíð.
Katla Björk Gunnarsdóttir er myndlistarmaður sem hefur áhuga á fólki og sögum. Í myndlist sinni fjallar hún meðal annars um samskipti og hvernig tungumálið mótar heiminn sem við búum í. Markmið hennar er að blörra línuna milli raunveruleikans og skáldskapar. Þá verður oft til mikið grín sem hægt er að moða úr. Katla Björk er vön að vinna í ýmsa miðla en undanfarið hafa teikning og skrif verið efst á baugi.
Tómas van Oosterhout er myndlistarmaður og tónlistarmaður sem vinnur í fjölbreytta miðla og vefur þá gjarnan saman. Ferlið sjálft er það sem vekur áhuga hans, ferli sem leiðir til verks eða ferli sem leiðir til einskis, ferli sem breytist í sífellu og er aldrei fyrirsjáanlegt. Í verkum sínum leikur hann sér með hugtök á borð við samspil, bæði samspil hljóðfæraleikara og samspil hlutanna í kringum okkur. Leikgleði og spuni eru í fyrirrúmi í verkum Tómasar.
Þau hafa unnið að alls kyns verkefnum saman en Katla Björk og Kata Jóhanness skipa gjörningadúóið KÁHH-greining en öll þrjú eru hluti af listamannahópnum Rúlletta sem hefur staðið að reglulegum sýningum síðastliðin fjögur ár. Auk þess hafa Katla Björk og Tómas van Oosterhout staðið að útgáfu ljóðabókarinnar Dagur íslenskrar Flúngu og tímaritsins Krant ásamt Þórhalli Runólfssyni.