Gestavinnustofa: Nindya Nareswari

​​Nindya Nareswari er listamaður og ljósahönnuður frá Indónesíu, búsett í Berlín. Í verkum sínum kannar hún hvernig skynjun mótast af samspili ljóss, efniviðs og rýmis með áherslu á tíma og hverfulleika. Hún vinnur með endurspeglun, ljósbrot og sjónræn fyrirbæri sem verða til með samspili ljóss og áþreifanlegra efna. Verk hennar sem oft verða til fyrir tilstilli dagsljóss, andrúmslofts og rýmis taka á sig mynd sem síbreytileg, tímabundin umgjörð þar sem myndir eru stöðugt að birtast og leysast upp. Listsköpun hennar endurspeglar spennu milli stjórnunar og stjórnleysis, sem býður áhorfendanum inn í hægari og einbeittari upplifun, þar sem þeir sitja eftir með hverfulu augnablikinu, þar sem skynjunin sjálf verður viðfangsefnið. 

Verk Nareswari hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi, þar á meðal á Instrumenta-hátíðinni í Listasafni Indónesíu, í Memphis-görðunum (Melbourne), Il Pianeta-hátíðinni (Mílanó), CTM-hátíðinni (Berlín) og Dealing in Distance Traveling-hátíðinni (Ho Chi Minh-borg og Balí). Í gestavinnustofu Skaftfells mun Nindya halda áfram listrannsóknum sínum á sjónrænum eiginleikum ljóss og athöfninni að sjá með því að kanna öfgakennda árstíðabundna birtu og náttúrufyrirbæri á norðurslóðum Íslands. Hún stefnir að því að skrásetja birtu fjarðarins, safna frásögnum heimafólks og flétta þeim saman í nýtt verk.

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir