Opið kall: Slóð – Skaftfell x Ströndin gangandi gestavinnustofa

Fyrir hverja: Listamenn sem starfa í öllum miðlum
Dagsetningar gestavinnustofunnar: 9. – 30. júní 2026.

UMSÓKN

Umsóknarfrestur: 23. nóvember 2026

Að reika innan um sífellt suð fossa
Að reika undir síðkvöldssólinni
Að reika í gegnum þokuna—
Með hugsunum,
Með ókunnugum,
Með orðum,
Og með þögninni sem fylgir. 

Göngur verða notaðar sem aðferð til þess að upplifa stað, líkama og huga. Í gestavinnustofunni koma saman átta listamenn sem hafa áhuga á að kanna göngur sem fagurfræðilega iðkun. Fjörðurinn, árnar, fjöllin, dalir, leiðir og vegir Seyðisfjarðar verða vettvangur þátttakenda til að hreyfa sig um og íhuga hugmyndir um tíma, rými og minningar—þar sem gönguferðir, markvissar eða reikandi, fá að hafa áhrif á listsköpun hvers og eins. 

Með hópgönguferðum (um það bil annan hvern dag), leshópum, samtölum og vettvangsvinnu fá þátttakendur tækifæri til að deila upplifun sinni af stað og einbeita sér að skapandi ferli og rannsókn frekar en lokaútkomu. Þátttakendur mega búast við því að taka þátt í skipulagðri dagskrá með hópnum 3-4 daga í viku, sem skilur eftir 3-4 daga fyrir sjálfstæða vinnu. Á meðan á vinnudvölinni stendur munum við fara um afskekkt svæði á Austfjörðum á milli Seyðisfjarðar og Borgarfjarðar eystri, bera eigin búnað og gista í útbúnum fjallaskálum í 3–4 nætur. Gestavinnustofunni lýkur með óformlegri kynningu á verkum í vinnslu.

Þær Jessica Auer, listamaður og stjórnandi Ströndin Studio og Kamilla Gylfadóttir listamaður og verkefnastjóri gestavinnustofu Skaftfells munu leiða gestavinnustofuna. 

Gisting og vinnurými:  Listamennirnir dvelja í þremur húsum í bænum í göngufæri við Skaftfelli og hvert öðru. Húsin eru skipulögð sem sameiginleg gistirými með eldunaraðstöðu, hvert með sér svefnherbergjum, sameiginlegri stofu og vinnurými, sameiginlegu baðherbergi og eldhúsi, vinnuborðum, þvottavél og interneti.

Kostnaður listamanns: Gestavinnustofugjaldið er 285.000 ISK og felur í sér dagskrá Slóðar, húsnæði, sameiginleg vinnustofurými og stuðning frá starfsfólki Skaftfells. Gestavinnustofugjald, ferðakostnaður til Seyðisfjarðar og flestar máltíðir greiðast af listamanninum.

Ferðalag: Listamaður sem tekur þátt í gestavinnustofunni ber ábyrgð á ferð sinni til Seyðisfjarðar. 

Mikilvægt: Vinsamlegast athugið að þátttaka í þessari gestavinnustofu felur í sér mikla útiveru í óútreiknanlegu veðri. Listamenn verða að geta gengið þægilega í allt að 8 klukkustundir á dag á ójöfnu landslagi og bera með sér eigin búnað og aðrar nauðsynjar. Listamenn verða að koma með trausta gönguskó og veðurþolinn fatnað.

Umsókn: Vinsamlegast sendið inn umsókn ásamt umbeðnum fylgiskjölum í gegnum rafræna umsóknarformið okkar. Umsóknarfrestur er til 23. nóvember 2026. Umsækjendur fá svar við umsókn 4-5 vikum frá umsóknarfresti.

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir