OPIÐ KALL: Gestavinnustofa Skaftfells 2026 – 2027!

Gestavinnustofan er fyrir listamenn sem starfa í mismunandi miðlum og hentar einstaklingum eða hópum með allt að þremur listamönnum.

Tímabil: Nóvember 2026 – Desember 2026 og Janúar 2027 – Júní 2027
Umsóknarfrestur: 31.maí 2026.

Skaftfell Listamiðstöð býður upp á alþjóðlega sjálfstýrða gestavinnustofu á Seyðisfirði. Afskekkt umhverfi veitir listamönnum tækifæri til að vinna í tiltölulegri einangrun á stað sem einnig er heimili alþjóðlegs samfélags starfandi listamanna. Gestavinnustofan býður upp á rými fyrir íhugun, sköpun og samvinnu og er tilvalið fyrir listrænar rannsóknir og tilraunir.

Nánari upplýsingar og umsóknarform hér: https://skaftfell.is/is/gestavinnustofur/

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir