Opin vinnustofa

Í ágúst og september dvelja tveir listamenn í gestavinnustofu Skaftfells með styrk frá Kunststiftung Sachsen-Anhalt. Það eru þau Sarah Deibele og Emanuel Schulze. Föstudaginn 11. september opna þau vinnustofur sínar í Netagerðinni fyrir almenningi og kynna verk sín og vinnuferli. Við bjóðum ykkur velkomin til að njóta áhrifa og spjalls yfir drykkjum og veitingum kl. 16:00.

Um listamennina:
Sarah Deibele er þýsk listakona, fyrirlesari og myndskreytir með aðsetur í Halle (Saale). Í teikningum sínum og prentverkum sýnir hún landslag og ferðast mikið í þeim tilgangi. Hún kryfur það sem hún man í einstaka hluta og setur allt saman aftur sem marglaga spor á pappír. Leikurinn með fleti, línur, hallað sjónarhorn, röð og takt nærir fjörugt sköpunarferli hennar á pappírnum. Stundum finnst henni eins og teikningin sé eins konar danshöfundarverk.

Á meðan á dvöl hennar í Skaftfelli stendur – sem er styrkt af Kunststiftung Sachsen-Anhalt – mun Sarah teikna hið dulúðlega landslag. Hughrif ferðarinnar snúast í innra myndminni hennar þar til landslagið er þýtt yfir á hennar rithönd. Fólk er mikilvægur hluti af landi. Í fyrsta sinn vill listakonan samþætta spor / myndræna þætti frá öðrum – listamönnum, ferðamönnum og heimamönnum. Hún safnar og biður um krot / skissur / veggjakrot á borðum á börum.


Emanuel Schulze er þýskur listamaður, fæddur í Bad Saarow og búsettur í Halle (Saale). Hann er myndlistarmaður og sviðsmyndahönnuður. Hann stundaði nám við „Hochschule für Bildende Künste“ í Dresden (Listaháskólinn í Dresden) frá 2001 til 2008.

Sem myndlistarmaður hefur hann síðastliðin ár aðallega fengist við málverk. Emanuel hefur hlotið ýmsa styrki fyrir málverk sín. Dvöl hans í Skaftfelli var styrkt af Saxony-Anhalt Art Foundation (Germany). Emanuel er einnig sviðsmynda- og búningahönnuður. Frá árinu 2007 hefur hann reglulega hannað sviðsmyndir og búninga fyrir fjölbreytt leikhús í Þýskalandi og Sviss.

Í málverkum sínum kannar hann gjarnan spennuna milli listræns frelsis og tæknilegrar nákvæmni. Landslagið verður til í málverksferli sem stjórnast af tilviljunum, sem hann stillir upp andspænis tæknilega útfærðum þáttum. Þetta hefur oft leitt af sér landslag með mannvirkjalíkum formum. Hann gerir einnig málverk í frjálsari stíl. Verk hans kalla fram íhugult andrúmsloft sem liggur á mörkum tóms og óhlutbundins.

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir