Forsala “Fjallahringur Seyðisfjarðar” Garðar Eymundsson

Harðspjalda, 56 bls, Íslenska, Skaftfell og Roth útgáfan. Fyrsta útgáfa 2009
15.000kr forsöluverð

Garðar Eymundsson lauk 15 mánaða vinnu við að teikna upp fjallahringinn sem umlykur Seyðisfjörð árið 2008-2009. Við vinnuna lá hann úti dögum saman til að fanga útlínur fjallanna og rissa svipbrigði þeirra á blað. Teikningarnar vann hann síðan áfram á vinnustofu sinni með blýantinn og augað að vopni. Garðar vann einnig útlínuteikningu af fjallahringnum með örnefnum allra fjalla og tinda, með dyggri aðstoð Vilhjálms Hjálmarssonar frá Brekku í Mjóafirði en Vilhjálmur útbjó einnig örnefnaskrá þar sem staðarháttum er lýst. Garðar Eymundsson á stóran þátt í tilurð Skaftfells og verður seint fullþakkað fyrir sinn hlut í stofnun miðstöðvarinnar. Hér er á ferð vandað bókverk þar sem teikningarnar fá að njóta sín. Bókin er gefin út í 100 eintök með nýju afmælisumslagi.

Endurútgáfa “Fjallahringur Seyðisfjarðar“ verður hluti af afmælissýningu Garðars Eymundssonar í Skaftfelli 25. apríl 2026 Til þess að tryggja þér eintak sendu okkur tölvupóst á skaftfell@skaftfell.is

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir