
Alejandra er mexíkóskur myndlistarmaður búsett í Osló í Noregi. Verk hennar fjalla um sögurnar sem móta sjálfsmynd. Hún sækir innblástur í fíngerð augnablik hversdagsins: atburði sem virðast algengir eða venjulegir en búa yfir merkingarbærum möguleikum til að breyta og umbreyta frásögnunum sem mynda veruleika okkar. Í listsköpun sinni kannar hún þessa möguleika með táknrænum framsetningum á dýrum, heimilismunum og náttúrulegu landslagi. Þættir úr bernsku hennar og núverandi lífi lifa saman á leikandi hátt í grafíkverkum hennar og grafískum innsetningum.
Hún gerir tilraunir með ólíkar grafíktækni, blandar saman einþrykki og tréristu og skapar marglaga myndir og þrívíða hluti. Dvöl hennar í Skaftfelli er styrkt af Norska listaráðinu (Arts Council Norway).