Útgáfu sögubókar Skaftfells:Tilurðarsaga 1996-2008 eftir fyrrum forstöðumaður Skaftfells, Tinnu Guðmundsdóttur.

Við þetta merka tilefni gleður okkur einnig að kynna útgáfu sögubókar Skaftfells:
Tilurðarsaga 1996-2008 eftir fyrrum forstöðumaður Skaftfells, Tinnu Guðmundsdóttur.

Í þessari útgáfu er rýnt í tilurð Skaftfells, listamiðstöðvar á Seyðisfirði.Tímabilið sem er skoðað nær frá árinu 1995 og fram á árið 2008. Skaftfell var stofnað 1998 og hefur síðan þá sinnt frumkvöðlastarfi á Austurlandi við miðlun myndlistar.Tilkoma miðstöðvarinnar er einsdæmi á landsvísu og var á sínum
tíma átak sem breiður hópur stóð að baki. Skaftfellshópurinn, stofnaður ári fyrr, 1997, hafði samkvæmt lögum félagsins það hlutverk að stuðla að, viðhalda og efla alla menningu á Seyðisfirði og styðja og efla alla starfsemi í listamiðstöðinni Skaftfelli.

Við bjóðum ykkur að taka þátt í fullri dagskrá með okkur laugardaginn 25.apríl í Skaftfelli, Austurvegi 42.

15:00 Skaftfell Bistró
Útgáfuhóf bókarinnar um Skaftfell: Tilurðarsaga 1996-2008
Upplestur og kynning frá Tinnu Guðmundsdóttur höfundi bókarinnar.

Tinna Guðmundsdóttir hefur unnið að verkefninu með hléum síðan 2017 og vill Skaftfell þakka henni fyrir frábært starf og þakka öllum þeim sem tóku þátt í gerð bókarinnar.

Skaftfell þakkar Miðstöð íslenskra bókmennta, Múlaþingi, Myndlistarsjóði, Miðstöð menningarfræða á Seyðisfirði – Austurbrú og Nýsköpunarsjóði námsmanna fyrir fjárhagslegan stuðning við verkefnið.

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir