Stella og Pietu í Skaftfelli

Við höfum verið þeirrar lukku aðnjótandi að hafa þau Stella Fritzsch and Pietu Lyytinen í starfsnámi hjá Skaftfelli. Þau stunda bæði nám við Pekka Halonen Academy í Tuusula, Finnlandi, á myndlistarbraut skólans.

Stella er nemandi frá Helsinki og mun útskrifast sem myndlistarmaður. Auk núverandi náms er hún á fjórða ári í umhverfisfræði við háskólann í Helsinki og vinnur að því að samþætta þekkingu sína á sviði umhverfismála við listsköpun sína.

Pietu er nemandi frá Järvenpää og stundar nám í listum og hönnun. Pietu stundaði áður nám í grafískri hönnun og útskrifaðist þaðan árið 2016.

Stella og Pietu unnu að uppsetningu á sýningunni Geiri – Opið hús og aðstoðuðu við framkvæmd fyrsta fasa varðveislu verkefnisins á Geirahúsi undir handleiðslu Gunnhildar Hauksdóttur í samstarfi við Damian Henryksson. Þau unnu að því að pakka, þrífa, mæla, flytja, skrásetja og skipuleggja alla muni og öll listaverk úr Geirahúsi.

Á meðan dvöl þeirra stóð nutu þau sundlaugarinnar, gufubaðsins á ströndinni og gönguferða í náttúrunni. Þau geta ekki ímyndað sér að annars staðar fyrirfinnist samfélag af þessari stærð með öllu sem því sem maður gæti þurft ásamt fjölbreytileika, menningu og ungu fólki sem bæði var gestrisið og hlýlegt. Við erum þeim einstaklega þakklát og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir