Menningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði var stofnuð árið 1998 og er ein langlífasta sjálfstæða listamiðstöð á landinu. Skaftfell hefur frá upphafi staðið fyrir öflugu sýningahaldi með áherslu á samtímalist og þar hefur líka verið starfrækt veitingahús og gestavinnustofa, sem að öllum líkindum er sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Að baki stofnun Skaftfells stóð öflugur hópur einstaklinga úr ólíkum áttum sem lagði til ómælda vinnu og mikla ástríðu til þess að sjá Skaftfell verða að veruleika. Við ætlum í svipmynd dagsins að huga að þessari merkilegu listamiðstöð, menningarhjarta Austurlands. Rætt er við Tinnu Guðmundsdóttur, myndlistarkonu, fyrrum forstöðukonu og höfund nýrrar bókar um tilurðarsögu Skaftfells, en auk þess Þóru Guðmundsdóttur, arkitekt og frumkvöðul, Pétur Kristjánsson, þjóðfræðing, myndlistarmann og fyrrum forstöðumann Tækniminjasafnsins á Seyðisfirði, Unu Björgu Magnúsdóttur, myndlistarkonu, Þóri Höskuldsson, myndlistarmann og Önnu Margréti Ólafsdóttur, verkefnastjóra í Skaftfelli.
hlustaðu hér: