
Sindri Dýrason
Júl - Ágú
Skoða nánar

Anna Ólöf Jansdóttir (f. 1999, Þýskalandi) lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands vorið 2025. Hún vinnur með olíumálverkið, þar sem heimur samtímakonunnar mætir fornum frásögnum og hefðum. Á íslenskri ættjörð virðist tíminn standa í stað og listakonan beinir sjónum sínum að eigin nærumhverfi. Sakleysi skepnunnar stendur andspænis náttúrunni sem í allri sinni fegurð er jafnframt ógnvænleg og ber með sér áminningu um það sem hverfult er. Verkin velta upp þeirri spurningu hvort við búum enn yfir sama eiginleika og forfeður okkar: að upplifa náttúruna á hennar eigin forsendum.