

Emanuel Schulze er þýskur listamaður, fæddur í Bad Saarow og búsettur í Halle (Saale). Hann er myndlistarmaður og sviðsmyndahönnuður. Hann stundaði nám við „Hochschule für Bildende Künste“ í Dresden (Listaháskólinn í Dresden) frá 2001 til 2008.
Sem myndlistarmaður hefur hann síðastliðin ár aðallega fengist við málverk. Emanuel hefur hlotið ýmsa styrki fyrir málverk sín. Dvöl hans í Skaftfelli var styrkt af Saxony-Anhalt Art Foundation (Germany). Emanuel er einnig sviðsmynda- og búningahönnuður. Frá árinu 2007 hefur hann reglulega hannað sviðsmyndir og búninga fyrir fjölbreytt leikhús í Þýskalandi og Sviss.
Í málverkum sínum kannar hann gjarnan spennuna milli listræns frelsis og tæknilegrar nákvæmni. Landslagið verður til í málverksferli sem stjórnast af tilviljunum, sem hann stillir upp andspænis tæknilega útfærðum þáttum. Þetta hefur oft leitt af sér landslag með mannvirkjalíkum formum. Hann gerir einnig málverk í frjálsari stíl. Verk hans kalla fram íhugult andrúmsloft sem liggur á mörkum tóms og óhlutbundins.