Sindri Dýrason

2026
Júl - Ágú

Sindri Dýrason (f. 1997, Reykjavík) lauk BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands vorið 2023. Hann vinnur með málverkið í víðari skilningi – grunnur hans liggur í vegglist í almannarýmum, stór verk sem fléttast inn í borgarlandslagið. Málverk listamannsins einkennast af innra lífi og tilraunum við að stilla andans óró – rótum hans sem liggja til Austfjarða og þeirrar stórbrotnu náttúru sem þar vakir yfir. Hið náttúrulega, afskræmda og ótrúlega birtist á vegg og striga. Þar ganga sexfætt hross, vængir bera skip yfir höf og úr stórum hornum hreindýra spretta blóm, áþreifanleg veröld hörfar og víkur fyrir viðfangsefnum skáldskapar.

Sindri fangar þennan anda og bíður áhorfandanum í einkennandi sér útvaldan myndheim sem hann heldur áfram að rannsaka og varpa á striga.

Aðrir listamenn