Fréttir

Skaftfell hlaut Eyrarrósina

Skaftfell hlaut Eyrarrósina

Skaftfell hlaut Eyrarrósina árið 2013, sem var afhent 12. mars í Hofi á Akureyri. Við erum mjög stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Fréttatilkynning: http://www.listahatid.is/um-listahatid-i-reykjavik/frettir/nr/2249

Málþing um uppbyggingu gestaíbúðar fyrir lista- og fræðimenn á Austurlandi

Málþing um uppbyggingu gestaíbúðar fyrir lista- og fræðimenn á Austurlandi

Miðvikudaginn 13. mars verður haldið málþing um uppbyggingu gestaíbúða fyrir lista- og fræðimenn á Austurlandi. Fyrirlesarar hafa þekkingu á slíkri uppbyggingu til margra ára. Margir velta fyrir sér þeim möguleika að búa til slíka þjónustu í sínu sveitarfélagi/svæði. Mikilvægt er að þekkja hindranir og tækifæri áður en lagt er af stað. Vona að sem flestir gefi sé tíma til að mæta og taka þátt í umræðunni. Staðsetning er Vonarland, húsnæði Austurbrúar á Egilsstöðum.