Fréttir

Teikninámskeið: Myndin af því sem við sjáum

Teikninámskeið: Myndin af því sem við sjáum

Fyrir 6 – 10 ára Mánudaginn 10. ágúst – föstudagins 14. ágúst kl. 13:00 – 15:00 Á námskeiðinu munu börnin kanna nýjar aðferðir í teikningu í gegnum leiki og ýmsar tilraunir. Unnið verður með mismunandi efnivið s.s. blýanta, kol, vatnsliti, vax og drullumall. Sambandið á milli þess sem við sjáum og þess sem við teiknum verður megin viðfangsefni námskeiðsins. Námskeiðið fer fram í Tónlistaskólanum en einnig verður unnið utandyra. Þátttakendur þurfa að mæta í vinnufötunum sínum og með viðeigandi útiföt fyrir drullumall og vesen. Námskeiðið er unnið af frumkvæði Skaftfells í samstarfi við Tónlistarskóla Seyðisfjarðar og RoShamBo. Leiðbeinandi: Þórunn Eymundardóttir Námskeiðsgjald […]

Read More

Indíánatjald í Hafnargarðinum

Indíánatjald í Hafnargarðinum

Mánudaginn 22. júní – miðvikudagins 24. júní Kl. 10:00-12:00 Fyrir 8-12 ára Skaftfell býður áhugasömum krökkum að setja sig í spor indíána og reisa tjald í Hafnargarðinum. Ef tími gefst væri tilvalið setja upp tótemsúlur. Þátttaka í smiðjunni er án endurgjalds og ekki þarf að skrá sig fyrirfram. Fatnaður eftir veðri. Endilega dreifið boðskapnum.