Óskyld – Rafael Vázquez

Gallerí Vesturveggur, Skaftfell Bistró, 5. des 2020 – 5. mars 2021

ÓSKYLD er úrval ljósmynda úr stærra safni sem fer sífellt stækkandi. Myndirnar sem sýndar verða á Vesturveggnum voru teknar síðastliðin tvö ár á Seyðisfirði.

Rafael Vázquez er ljósmyndari frá Madrid sem hefur fengist við listir og á sér langan feril sem grafískur hönnuður. Hann hefur verið á faraldsfæti síðustu átta árin og er núna búsettur á Seyðisfirði. Þetta er hans fyrsta sýning á Íslandi.