Articles by: Tinna

/www/wp content/uploads/2016/12/austurland

Opnunartímar yfir hátíðarnar

Opnunartímar yfir hátíðarnar í Bistróinu og sýningarsalnum eru eftirfarandi. Þorláksmessa: frá klukkan 15:00 Aðfangadagur: Lokað Jóladagur: Lokað Annar í jólum: frá klukkan 15:00 Gamlársdagur: Lokað Nýársdagur: frá klukkan 17:00 Alla aðra daga á milli jóla og nýárs er opið frá kl 15:00-21:00. Eldhúsið opnar alla dagana á slaginu kl. 17:00 og lokar ekki fyrr en í fyrsta lagi kl. 21:00. Skrifstofa Skaftfells er lokuð til 5. jan.

/www/wp content/uploads/2016/12/minningar banner web 1

Vefkort fyrir Munnleg geymd og kortlagning minninga tilbúið

Samantekt úr fræðsluverkefninu Munnleg geymd og kortlagning minninga í formi vefkorts er tilbúið, sjá nánar á: http://skaftfell.wixsite.com/minningar Farandlistsmiðjan fór fram í október 2016 undir leiðsögn Ragnheiðar Maísól Sturludóttur fyrir nemendum á miðstigi í Austfirskum grunnskólum, þeim að kostnaðarlausu. Í verkefninu var hugtakið munnleg geymd krufið af nemendum og í kjölfarið skoðað hvað gerist þegar munnleg geymd er skrásett annars vegar sem hljóðupptaka og hins vegar á sjónrænan máta. Nemendur nýttu eigin minninga- og frásagnarbanka til að segja frá atburði eða upplifun hvort sem það var þeirra eigin reynsla eða eitthvað sem þau höfðu heyrt af. Niðurstöður voru settar fram í vefkorti, unnið af RoShamBo.