Fréttir

/www/wp content/uploads/2017/12/munur mg 8981

Opnunartímar yfir jól og áramót

Opnunartímar yfir hátíðarnar í Bistróinu og sýningarsalnum eru eftirfarandi. Þorláksmessa: frá klukkan 15:00 Aðfangadagur: Lokað Jóladagur: Lokað Annar í jólum: frá klukkan 15:00 Gamlársdagur: Lokað Nýársdagur: frá klukkan 17:00 Alla aðra daga á milli jóla og nýárs er opið frá kl 15:00-21:00. Eldhúsið opnar kl. 16:00 og lokar kl. 21:00. Skrifstofa Skaftfells er lokuð til 4. jan. Ljósm. Claudia Hausfeld

Gestalistamaður Skaftfells kynnir verk sín fyrir nemendum ME

Gestalistamaður Skaftfells kynnir verk sín fyrir nemendum ME

Á dögunum heimsótti bandaríska listakonan Jessica MacMillan nemendur í Menntaskólanum á Egilsstöðum og kynnti fyrir þeim verk sín. Jessica dvaldi í Skaftfelli í tvo mánuði og tók m.a. þátt í samsýningunni Blikka, ásamt þremur öðrum gestalistamönnum, sem var hluti af utandagskrá myndlistarhátíðarinnar Sequences í Reykjavík. Í verkum sínum gerir Jessica tilraunir til að yfirfæra fyrirbæri himingeimsins í skúlptúra sína og innsetningar og auka þannig skilning okkar og skynjun á fyrirbærum sem við eigum oft erfitt með að tengja við sökum umfangs og fjarlægðar.