Post Tagged with: "Geirahús"

Listaverk eftir Geira á sýningu í Brisbane

Listaverk eftir Geira á sýningu í Brisbane

Skaftfell hefur lánað tímabundið sex verk eftir Geira, Ásgeir Jón Emilsson (1931-1999),  á samsýningu í MetroArts í Brisbane, Ástralíu. Sýningin ber titilinn A ship called she og er í umsjón Catherine or Kate, ástralskra listamanna sem voru gestalistamenn Skaftfells á síðasta ári. Að undanförnu hafa listamennirnir dvalið í gestavinnustofu á vegum MetroArts og er sýning afrakstur af þeirri vinnu. Sýningin stendur frá 9.-26. maí. Sjá nánar: http://metroarts.com.au/?page=59 http://metroarts.com.au/popup_static.php?id=718

Heimsóknir í Geirahús

Núna stendur yfir unaðsleg sýning á verkum alþýðulistamannsins Ásgeirs Emilssonar. Skaftfell hefur rekið lítið safn um hann allt frá því hann lést árið 1999. Geirahús er til sýnis fyrir gesti og gangandi, heimsóknin tekur um 30 mínútur og er farin í fylgd einhvers af starfsmönnum Skaftfells. Aðgangseyrir er 500 krónur og hámarksstærð hópa er 5 manns. Til að heimsækja Geirahús þarf að panta tíma á skrifstofu Skaftfells, í síma 472 1632 eða með tölvupósti [email protected].