Fréttir

Tilnefning til Eyrarrósarinnar

Tilnefning til Eyrarrósarinnar

Skaftfell er eitt af þremur verkefnum sem er tilnefnt til Eyrarrósarinn árið 2013. Í umsögn dómnefndar segir: „Skaftfell – miðstöð myndlistar á Austurlandi er í sögufrægu húsi í gamla bænum á Seyðisfirði. Kraftmikil og metnaðarfull starfsemi með skýra listræna sýn einkennir Skaftfell og með nánu samstarfi við bæjarbúa hefur orðið til á Seyðisfirði lifandi samfélag listamanna, heimamanna og gesta. Skaftfell er opið allan ársins hring og nánari upplýsingar um fjölbreytt starfið má finna á www.skaftfell.is.“ Eyrarrósin verður afhent 12. mars í Hofi á Akureyri. Hin verkefnin eru Act Alone og Eistnaflug.

Relay – the word passed on

Relay – the word passed on

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar bauð Skaftfelli að taka þátt í nýjum mánaðarlegum dálki í bloggi þeirra, Relay – the word passed on. Relay – the word passed on presents Skaftfell from Icelandic Art Center on Vimeo. Nánar um Frásagnasafnið Frá því í byrjun árs 2011 hefur Skaftfell staðið að verkefninu Frásagnasafnið.Tilgangurinn er að safna frásögnum allra íbúa Seyðisfjarðar á árunum 2011 til 2012 og varðveita einskonar svipmyndir sem saman lagðar gefa heildstæða mynd af samfélaginu. Meira