Listsmiðja fyrir börn og RIFF úrval

Leiðsögn og listsmiðja fyrir fjölskyldur
Laugardaginn 9. nóv. kl. 15:00

Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, fræðslufulltrúi Skaftfells, mun bjóða upp á fjölskylduleiðsögn um sýninguna „Hnallþóra í sólinni” og listsmiðju í kjölfarið.
Ekkert þátttökugjald, ekkert aldurstakmark
og allir velkomnir.

Skráning fer fram á: fraedsla(a)skaftfell.is

RIFF úrval 2013
11. – 12. nóvember
Skaftfell, opnar útibú fyrir Reykjavík International Film Festival á Seyðsifirði.

Til sýnis verða fjórar heimildarmyndir í Bistróinu. Aðgangseyrir er 500 kr., engin posi.

Mánudagur, 11. nóv
Kl. 20:00  Indversk sumar
Kl. 21:30  GMO OMG

Þriðjudagur 12. nóv
Kl. 20:00   Sjóræningjaflóinn fjarri lyklaborðinu
Kl. 22:00   Valentínusarvegur

Nánar um myndirnar:

INDVERSKT SUMAR / Indian Summer
Simon Brook
France, 2013, 84 mín.

Indverskt sumar er gamansöm vegamynd um ferðalag um Suður-Indland til að kanna læknismeðferðina Ayurvedic, fimm þúsund ára óhefðbundna lækningu. Myndin fylgir óvenjulegu pari: Heimsfrægum frönskum eitlalækni sem þráir að kynnast annars konar lækn- ingum og draga þekkingu sína í efa og fyrrverandi sjúklingnum hans sem valdi indverskar lækningar fram yfir þá meðferð sem mælt er með. „Læknisfræðilegur gaman- leikur“ sem fjallar á nýstárlegan og frumlegan hátt um efnið.

 

GMO OMG
Jeremy Seifert
United States, Haiti, Norway, 2013, 19 mín.
Stikla: http://youtu.be/ynyB2fNn8kQ

EBM GMG segir leynda sögu þess að risavaxin efnafyrirtæki hafa tekið yfir fæðuframboð okkar; landbúnaðarlegu hættuástandi sem er orðið að menningarlegu hættuástandi. Myndin fylgist með baráttu leikstjórans og fjölskyldu hans fyrir því að lifa og borða án þess að taka þátt í óheilbrigðu, ósanngjörnu og eyðileggjandi fæðukerfi. Er yfirtaka fæðu- kerfis heimsins óafturkræf?
Eða er enn tími til að endur- heimta hreinleikann, bjarga líffræðilegri fjölbreytni og okkur sjálfum?

 

SJÓRÆNINGJAFLÓINN FJARRI LYKLABORÐINU
/ TPB AFK: The Pirate Bay Away
Keyboard Simon
Sweden, Denmark, Norway, 2013, 82 mín.
Stikla: http://youtu.be/KCAGb7oSwDs

Myndin er einstakt tækifæri til að kíkja á bakvið tjöldin í umdeildu dómsmáli vegna höfundarréttarbrota gegn stofnendum deilisíðunnar Sjóræningjaflóans. Þegar hakkara-undrabarnið Gottfrid, vef-aktívistinn Peter og tölvunördið Fredrik eru fundnir sekir standa þeir frammi fyrir raunveruleika lífsins án netsambands – fjarri lyklaborðinu. En djúpt niðri í myrkviðum gagnaveranna leynast tölvur sem halda hljóðlega áfram að afrita skrár.

 

VALENTÍNUSARVEGUR / Valentine Road
Marta Cunningham
United States , 2013 89 mín.
Stikla: http://vimeo.com/72726110

Þessi mynd, sem var heimsfrumsýnd Sundance árið 2013, mun bæði valda þér hugarangri og gefa þér spark í rassinn.
15 ára drengur spurði annan dreng hvort hann vildi vera Valentínusarskotið hans á skólalóð í úthverfi Kaliforníu. Næsta dag var hann látinn, skotinn með köldu blóði í höfuðið af 14 ára skotinu sínu. Valentine Road er á stundum yfirgengileg, eyðileggjandi og svívirðileg, þar sem hún kafar ofan í hommahatur, kynjamisrétti, kynþáttahatur og stéttabaráttu sem einkennir hið hversdagslega bandaríska líf.