Síðustu sýningardagar

Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu myndlistanema Listaháskóla Íslands í Skaftfelli.

Síðasti sýningardagur er laugardaginn 5. maí, opið er frá kl. 17-22.


SKÁSKEGG Á VHS+ CD opnaði í febrúar og er afrakstur tveggja vikna námskeiðs, undir leiðsögn Björns Roth, sem haldið er í samstarfi við Skaftfell, Listaháskóla Íslands, Dieter Roth Akademíuna og Tækniminjasafn Austurlands.

Sýnendur: Ásgrímur Þórhallsson, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Claudia Hausfeld, Dóra Hrund Gísladóttir, Erik Hirt, Gintare Maciulskyté, Gunnar Jónsson, Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Katla Stefánsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, Sigmann Þórðarson, Sigurður Þórir Ámundason, Steinunn Lilja Emilsdóttir & Viktor Pétur Hannesson.
Sýningarstjóri er Björn Roth.

Skaftell er opið:
þriðjudaga – föstudaga kl. 13 – 16
þriðjudaga – miðvikudaga kl. 17 – 22
föstudaga – laugardaga kl. 17 – 22
og eftir samkomulagi.