Söfnun á frásögnum lokið

Söfnun á frásögnum í Frásagnasafnið mun formlega ljúka hinn 1. desember. Verkefnið hefur staðið yfir í tvö ár og hafa safnast um tvö hundruð frásagnir frá íbúum Seyðisfjarðar.

Af þessu tilefni verða afrit af Frásagnasafninu afhent til varðveislu Bókasafni Seyðisfjarðar, Héraðskjalasafni Austfirðinga og Tækniminjasafni Austurlands. Fulltrúar frá þessum stofnunum munu veita því viðtöku.

Einnig munu Árný Björg Bergsdóttir verkefnastjóri Frásagnasafnsins, Hrafnkell Lárusson forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga og Pétur Kristjánsson forstöðumaður Tækniminjasafnsins flytja erindi um verkefnið.

Léttar veitingar í boði.

Um Skaftfell og Frásagnasafnið / Skaftfell and The Narrative Collection from Skaftfell on Vimeo.

Nánar um verkefnið

Frá því í byrjun árs 2011 hefur Skaftfell staðið að verkefninu Frásagnasafnið. Tilgangurinn er að safna frásögnum allra íbúa Seyðisfjarðar á árunum 2011 til 2012 og varðveita einskonar svipmyndir sem saman lagðar gefa heildstæða mynd af samfélaginu.

Það er einstakt að geta kortlagt endurminningar heils samfélags. Slík yfirsýn veitir ekki einungis innsýn í samfélagið heldur er það einstæð samtímaheimild. Heimild um mannlega tilvist, heimild um gang tímans, samspil kynslóðanna og þann grunn er liggur á bak við samtímann.

Frásagnir hafa verið teknar upp á myndband og verið til sýnis í bækistöð verkefnisins, söfnunarmiðstöðinni, í aðalsýningarsal Skaftfells. Söfnunarmiðstöðin var formlega opnuð 17. júní 2011 og þar gátu gestir horft á frásagnir og kynnt sér verkefnið. Miðstöðin var opin í átta mánuði og bættust frásagnir sífellt við.

Frumkvæði af Frásagnasafninu kom frá listrænum stjórnandi Skaftfells 2011-2012, svissneska listamanninum Cristoph Büchel. Verkefnið er unnið í samvinnu við Þjóðfræðistofu en söfnunin fer fram samtímis á Ströndum og á Seyðisfirði. Áætlað er að í lok árs 2012 verði söfnunin yfirstaðin.