Fréttir

Heimsóknir í Geirahús

Núna stendur yfir unaðsleg sýning á verkum alþýðulistamannsins Ásgeirs Emilssonar. Skaftfell hefur rekið lítið safn um hann allt frá því hann lést árið 1999. Geirahús er til sýnis fyrir gesti og gangandi, heimsóknin tekur um 30 mínútur og er farin í fylgd einhvers af starfsmönnum Skaftfells. Aðgangseyrir er 500 krónur og hámarksstærð hópa er 5 manns. Til að heimsækja Geirahús þarf að panta tíma á skrifstofu Skaftfells, í síma 472 1632 eða með tölvupósti [email protected].

Auglýst eftir umsóknum um vinnustofudvöl með kknord styrk

Skaftfell hefur hlotið styrk frá kknord til að bjóða nokkrum listamönnum frá Norðulöndunum eða Eystrasaltinu til dvalar í nokkra mánuði. Sómahjónin Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Elvar Már Kjartansson hafa verið svo elskuleg að lána Skaftfelli húsið sitt á Fossgötu undir þessa listamenn. Nú erum við að kalla eftir umsóknum og má finna allar upplýsingarnar á heimasíðunni. Þeim hjá kknord hugnast ekki að listamennirnir séu af sama þjóðerni og sjálf miðstöðin svo íslenskir listamenn koma vart til greina, nema þá að þeir séu með lögheimili á einhverju hinna norðurlandanna eða við Eystrasaltið. Þeir sem þetta lesa meiga hinsvegar gjarnan koma þessum […]

Read More