Home » 2014

Secret Garden Verönd

AFHJÚPUN OG ÚTGÁFUHÓF Í HÓLI FIMMTUDAGINN 28. ÁGÚST KL. 16:00

Staðbundin innsetning eftir sænsku listakonunna Suzönna Asp verður formlega afhjúpað í garðinum á Hóli gestavinnustofu, Vesturvegi 15, fimmtudaginn 28. ágúst kl. 16:00.

Verkefnið SECRET GARDEN VERÖND hófst árið 2012 af frumkvæði Suzönnu Asp mynlistarkonu, í samstarfi við Skaftfell. Upphafsstaður verkefnisins var húsið Hóll og bakgarður þess. Grunnhugmyndin að baki verkinu byggir á hinsegin femínisma og kenningun síðnýlendutímans ásamt því að velta upp spurningum um tengsl texta, líkama og staðar. Hverjum er gefin staður, hvar er staður gefin og hvernig er hægt að umbreyta stað.

Hóll var byggður snemma á 20. öld og var í eigu íslenska myndlistarmannsins Birgis Andréssonar. Húsið hefur verið rekið sem gestavinnustofa Skaftfells frá því 2009. Við bakhlið húsins er hefur nú verið byggð staðbundin innsetning sem tekur sér form útisviðs og er framlenging af húsbyggingunni. Sviðið er hægt að nota fyrir viðburði, gjörninga, upplestur og þar að auki til einkanota, íhugunnar og garðræktunar.

Hluti af verkefninu er útgáfa bókverksins SECRET GARDEN VERÖND þar sem verkefnið er kynnt í máli og myndum undir ritstjórn Suzönnu Asp. Í bókinni eru ljóð og ritgerðir eftir listamenn og ljóðskáld sem öll hverfast um texta, líkama og stað.

 

Nánar upplýsingar um verkefnið má lesa hér: www.suzannaasp.com/secretgardenverönd

Æviágrip

Suzanna Asp (b. 1976 in Sweden) graduated with a Master of Fine Arts degree from the Finnish Academy of Fine Arts, Helsinki, in 2009. She works with site-specific interventions, painting installations, performance and text. She has held a number of solo exhibitions, most recent; Given, 1.Opening, 2. Closure at Forum Box, Helsinki (2012) and Play in Three Acts at Wip:Konsthall, Stockholm (2011). Group exhibitions
include; Artistic Research at Konstfack, Stockholm (2013), Dimensions of Sharing at Overgaden Institute of Contemporary Art, Copenhagen (2013), Rummaging at Bonniers Konsthall, Stockholm (2009), Lost in Translation at Antrepo #5, 9th Istanbul Biennial (2005).
www.suzannaasp.com

 

Verkefnið er styrkt af Konstnärsnämnden – The Swedish Arts Grants Committee, Norrænu menningargáttinni, Nordic-Baltic Mobility Programme og Svensk-Isländska samarbetsfonden.