2013

Úttekt á vinnuaðferðum og samstarfi meðal myndlistamanna á Seyðisfirði

Gestalistamennirnir Åse Eg Jørgensen (DK) & Karena Nomi (DK/CAN) hafa framkvæmt könnun á vinnusambandi myndlistamanna á Seyðisfirði. Unnið verður úr þeim gögnunum sem safnast og þeim umbreytt í tréristur. Afrakstur verkefnisins verður til sýnis í Bókabúðinni – verkefnarými mánudaginn 19. ágúst frá kl. 16:00-19:00. Boðið verður upp á kaffi og kökur, vonumst til að sjá ykkur.  

Listamannaspjall #13

Listamannaspjall #13

Mánudagur 5. ágúst á 20:00 Skaftfell hefur tekið á móti þremur nýjum gestalistamönnum og munu þeir halda stutta kynningu næstkomandi Mánudag kl. 20:00 í Bókabúðinni-verkefnarými. Ragnar Helgi Olafsson sem dvelur í einn mánuð. Åse Eg Jørgensen frá Danmörku og dvelur hún í tvo mánuði. Michal Kindernay frá Tékkland og dvelur hann í einn mánuð. Spjallið fer fram á ensku og verða léttar veitingar í boði.