Articles by: Þórunn

Hrúga

Hrúga

12.09.11 – 28.09.11   Hugmyndin að sýningunni er sú að Kristín Elva vinnur verk á stuttum tíma í vinnustofudvöl á Norðurgötu og hengir á Vesturvegginn, Marta María vinnur sín verk eins og bætir á vegginn. Síðan lýkur Melkorka ferlinu á sama hátt. Verkin mega vera hvernig sem er og allar hengja verk sín upp eins og þær kjósa sjálfar – þær sem á eftir koma mega færa og breyta að vild en ekki má fjarlægja neitt af veggnum. Sýningin er breytileg og lifandi og niðurstaðan ófyrirsjáanleg.

Fyrirlestrar gjörningur – bækurnar sem ég hef ekki lesið

Fyrirlestrar gjörningur – bækurnar sem ég hef ekki lesið

Bókabúðin – Verkefnarými Föstudagurinn 26. ágúst @ 17.00 Listamaðurinn Noële Ody mun fremja gjörning í Bókabúðinni – verkefnarými Skaftfells, föstudaginn 26. ágúst kl. 17.00. Gjörningurinn byggist á sambandi hennar við bækurnar sem hún á en hefur ekki lesið. Gjörningurinn stendur í um klukkustund og boðið verður upp á kaffi og kökur. Noële Ody er gestalistamaður á Hóli í ágúst.