Articles by: Hanna Christel

Rithöfundalest(ur) 2020

Rithöfundalest(ur) 2020

Eins og svo margt á þessu skrítna ári verður Rithöfundalestin á Austurlandi með breyttu sniði í ár; upplestur rithöfunda mun fara fram á Austurfrétt þar sem myndbönd munu birtast með reglulegu millibili fram að jólum. Einnig mun barnabókarithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir heimsækja grunnskólana á Austurlandi og kynna fyrir börnum bækur sínar. Við hvetjum alla fjær og nær að fylgjast vel með upplestrum á Austurfrétt!

PREFAB / FORSMÍÐ

PREFAB / FORSMÍÐ

Sýningarsalur Skaftfells, 26. september – 20. desember 2020. Opnunartimar: Mán – fös, kl. 12-18. Lau – sun, kl. 15 – 18. Sýningarstjóri: Guja Dögg Hauksdóttir, Ráðgjafi: Gavin Morrison Opnun: 26. september 2020, kl. 14:00 – 18:00. Léttar veitingar og stuttar leiðsagnir verða í boði yfir daginn. Við minnum sýningargesti á eins metra regluna og að spritta hendur við inngang. Vegna takmarkana geta aðeins um 25 gestir verið inni í salnum í einu og þess vegna er opnunartíminn lengri yfir daginn.   Einingahús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra Einingahús, þ.e. byggingar úr einingum sem eru forsmíðaðar í verksmiðju og […]

Read More