Articles by: Skaftfell Residency

Velkomin Solveig Thoroddsen

Velkomin Solveig Thoroddsen

Við bjóðum Solveigu Thoroddsen hjartanlega velkomna sem gestalistamann Skaftfells í febrúar. Solveig útskrifaðist úr meistaranámi frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur verið virkur listamaður síðan. Hún vinnur þvert á miðla og helstu viðfangsefni hennar eru samspil manns og náttúru. Ennfremur eru verk hennar samfélagsmiðuð með feminískum tilvísunum. Ásamt myndlist hennar fæst hún einnig við skrif og hefur gefið út tvær ljóðabækur. Um þessar mundir er hún að vinna að bók þar sem hún safnar og velur íslenskar þjóðsögur þar sem kvenpersónur eru söguhetjur og endurskrifar þær í nútíma frásagnarstíl. Bókin verður myndskreytt með verkum hennar en undanfarin ár hefur […]

Read More

Velkominn Frederik Heidemann

Velkominn Frederik Heidemann

Skaftfell býður Frederik Heidemann hjartanlega velkominn sem gestalistamann í febrúar. Frederik Heidemann er listamaður sem vinnur með tónlist, gjörningalist og útvarp. Hann gerir samsett verk og vinnur með ólíka hluti, allt frá útvarps mixteipum til hringitóna. Hann leggur reglulega til efni fyrir Thelakeradio.com og Groupcrit.net og er einn hluti af tvíeykinu Yrdloop. Á meðan dvöl hans í Skaftfelli stendur mun hann rannsaka ósagða sögu tónlistar Dieter Roths ásamt útgáfu hans Dieter Roth Familienverlag. http://frederikheidemann.dk/